Meistaranemar í félagsráðgjöf mættir í starfsnám

Nemar í meistaranámi í félagsráðgjöf hófu starfsnám hjá Stendur endurhæfingu þann 15. september. Það eru þær Anna Karen og Elfa Mjöll, nemar á fjórða ári í meistaranámi til starfsréttinda í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.

Þær munu dvelja hjá okkur næstu fimm vikurnar og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast starfsemi okkar. Markmiðið er að veita þeim tækifæri til að kynnast starfsumhverfi félagsráðgjafa í starfsendurhæfingu, öðlast dýrmæta reynslu og efla faglega hæfni sína.

Anna Karen útskrifist með BA gráðu í félagsráðgjöf úr Háskóla Íslands árið 2013, einnig útskrifaðist hún úr Háskóla Íslands árið 2014 með diplómu á meistarastigi í sálfræði í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á áhættuhegðun, forvarnir og lífssýn. Anna Karen hefur unnið víða í skólasamfélaginu með börnum og þar af síðast sem deildarstjóri á leikskóla. Elfa Mjöll útskrifaðist úr Háskóla Íslands með BA gráðu í félagsráðgjöf vorið 2025 og hefur reynslu að vinna með fólki með geðrænan vanda og vímuefnavanda.

Við hlökkum til samstarfsins og bjóðum þeim hjartanlega velkomnar í starfsnám hjá Stendur starfsendurhæfingu.

Share:

Tengdar færslur

Scroll to Top