Skref í rétta átt – Grein eftir Sigrúnu Hörpu Sigurðardóttur, félagsráðgjafa

Sigrún Harpa Sigurðardóttir, félagsráðgjafi var nemi hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar (nú Stendur starfsendurhæfing) tímabilið janúar – apríl 2025. Hún kynntist vel starfinu og skrifaði grein í Tímarit félagsráðgjafa um hóp þátttakenda í endurhæfingunni sem tók þátt í Mottumars hlaupi Krabbameinsfélagsins og Píeta hlaupinu sem haldið var einnig í mars. Greinin var liður í því að segja frá því sem er að gerast á vettvangi. Sigrún tók viðtöl við þrjá þátttakendur og segir frá upplifun þeirra og jákvæðum áhrifum á líðan en ekki síður frá mikilvægi þess að láta gott af sér leiða í tengslum við málefnin sem snerta í raun okkur öll á einn eða annan hátt. Sigrún hefur ráðið sig í fullt starf Stendur starfsendurhæfingu og óskum við henni til hamingju með útskrift úr meistaranámi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og fögnum henni sem félagsráðgjafa hjá Stendur starfsendurhæfingu.

Hér má lesa greinina sem birtist í Tímariti félagsráðgjafa 1. tbl. 19. árgangur 2025, bls. 21-22

Skref í rétta átt: Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar

 

Share:

Tengdar færslur

Scroll to Top