Starfsfólk
Starfsfólk Stendur starfsendurhæfingar
Sveindís Anna Jóhannesdóttir
Sveindís Anna Jóhannsdóttir er framkvæmdastjóri Stendur starfsendurhæfingar. Hún stundaði nám í sálfræði en lauk síðan starfsréttindanámi og MA prófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og er með sérfræðiréttindi í félagsráðgjöf á heilbrigðissviði. Sveindís er einnig með nám í sáttarmeðferð, diplómanám í handleiðslu, ART þjálfun ásamt IPS ráðgjafamenntun. Hún hefur auk þess sótt ýmis námskeið sem hluta af sí- og endurmenntun. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri hjá Félagsráðgjafafélagi Íslands (FÍ), var fagstjóri félagsráðgjafa á Reykjalundi, endurhæfingarmiðstöð SÍBS ásamt því að vera þar formaður Gæðaráðs um tíma, auk setu í Barnaverndarnefnd Hafnarfjarðar um árabil. Sveindís starfaði hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar í tæp tíu ár samhliða því að starfrækja meðferðar- og ráðgjafaþjónustuna Félagsráðgjafinn, þar sem hún sinnti fjölskylduráðgjöf, fræðslu fyrir fagfólk og almenning auk handleiðslu fagfólks. Sveindís hefur sinnt stundarkennslu við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands frá árinu 2006. Hún hefur verið virk í félagsstörfum og m.a. verið varaformaður FÍ, formaður Vísindanefndar FÍ, setið í fagráði fagdeildar félagsráðgjafa í endurhæfingu innan FÍ auk þess sem hún hefur verið formaður siðanefndar Handleiðslufélags Íslands, varaformaður félagsins og er nú formaður Handleiðslufélags Íslands. Sveindís sat í ritnefnd bókarinnar Heilbrigði og heildarsýn og í ritstjórn bókarinnar Handleiðsla til eflingar í starfi auk þess sem hún er fastur pistlahöfundur við Tímarit Evrópusamtaka handleiðara (e. ANSE Journal) og hefur ritað ýmsar greinar um fagleg málefni í fagtímaritum, dagblöðum og vefmiðlum

Díana Ívarsdóttir
Díana er reynslumikill kennari og ráðgjafi með víðtæka þekkingu og áratuga reynslu úr grunnskólastarfi. Hún lauk BA-prófi með kennsluréttindum og M.Ed.-prófi í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem grunnskólakennari frá árinu 1995. Díana hóf störf við Myllubakkaskóla í Keflavík þar sem hún sinnti kennslu auk þess að hafa yfirumsjón með félagslífi nemenda og stýrði fjölbreyttum sýningum á vegum skólans. Við Áslandsskóla í Hafnarfirði kenndi hún tónmennt, stofnaði og stýrði skólakór og setti upp fjölmargar sýningar með nemendum. Í Grunnskóla Reyðarfjarðar gegndi hún stöðu aðstoðarskólastjóra og deildarstjóra stoðþjónustu, þar sem hún leiddi faglegt starf, sinnti ráðgjöf og stóð jafnframt að metnaðarfullum sýningum með nemendum skólans. Síðast starfaði Díana sem deildarstjóri stoðþjónustu við Kársnesskóla í Kópavogi. Díana hefur lokið námi frá Ráðgjafaskóla LTV og er viðurkenndur leiðbeinandi í námskeiðinu, Úr skuldum í jafnvægi og að veita fjármálaráðgjöf undir hugmyndafræðinni, Leiðin til velgengni. Hún hefur réttindi til að leggja fyrir Milli mála próf og er viðurkenndur ART-þjálfari. Díana hefur einnig lokið burtfararprófi í söng og býr yfir víðtækri reynslu af tónlistar- og menningarstarfi innan
skólakerfisins. Díana leggur áherslu á fagmennsku, jákvæð samskipti, heildstæða velferð og virkni einstaklinga.

Elsa Sigríður Þorvaldsdóttir
Elsa Sigríður er sjúkraliði og student frá FB, lauk námi í iðjuþjálfun í Noregi 1985,
BSc prófi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri og meistaraprófi í
Heilbrigðisvísindum frá sama skóla 2010. Hún vann um tíma á heimili fyrir
þroskaskerta í Þrándheimi. Flutti síðan til Berlínar með fjölskyldu sinni. Þaðan flutti
hún til Bodo í Noregi og vann á Valnesfjord endurhæfingarsjúkrahúsi. 1990 flutti
fjölskyldan heim og hún fór að vinna á Grensás og Borgarspítalanum. Þaðan lá leiðin
á Ráðgjafa og Greiningarstöð Islands. Seinna fór hún að vinna á MS – heimilinu.
Árið 2001 flutti Elsa ásamt fjölskyldu sinni til Húsavíkur og fór að vinna á
Heilbrigiðsstofnun Þingeyinga. 2007 flutti fjölskyldan suður, þá réði hún sig í vinnu á
Æfingarstöð styrktarfélagsins með börn. Elsa hefur langa reynslu af iðjuþjálfun barna
og hefur sérstakan áhuga á fjölskyldumiðaðri meðferð. Árið 2008 fór hún að vinna
einn dag í viku hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar, sá þá um hópefli. Árið 2014,
réði hún sig í 80% starf hjá Stendur í Hf.
Elsa var ásamt hópi af frábæru fólki einn af frumkvöðlum við að byggja upp
Starfsendurhæfinguna BYR á Húsavík, sem síðar varð starfsendurhæfing
Norðurlands. Hugmyndafræðin sem Byr lagði upp með er módelið sem notað er á
starfsendurhæfingarstöðvum víða um land.
Elsa hefur verið dugleg að sækja námskeið og halda sér virkri í gegnum árin, þá
hefur hún setið í ólíkum nefndum og stjórnum.
Elsa hefur haldið ótal fyrirlestra um ólík málefni í gengum árin.

Harpa Þórðardóttir
Harpa er með BA próf í sálarfræði frá University of Toledo, Ohio og MA próf í ráðgjafarsálarfræði frá Lesley College í Boston. Hún lauk sérnámi í hugrænni atferlismeðferð (HAM) við Endurmenntun Háskóla Íslands. Harpa var verkefnastjóri hjá Námsflokkum Reykjavíkur þar sem hún vann meðal annars við Grettistak, Kvennasmiðju og Karlasmiðju. Hún var ráðgjafi Virk starfsendurhæfingarsjóðs hjá Eflingu. Harpa hefur langa reynslu af ráðgjafarstörfum með ungu fólki meðal annars í skólakerfinu og félagsþjónustu.

Helga Dögg Helgadóttir
Helga er með BS próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og Cand. Psych. gráðu í kliniskri sálfræði frá sama skóla. Að námi loknu vann hún við atferlisþjálfun og sem kliniskur sálfræðingur á eigin stofu. Hún hefur starfað sem sálfræðingur í Verslunarskólanum og Menntaskólanum í Hamrahlíð og rekur nú eigin sálfræðistofu samhliða starfi sínu hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar. Helga hefur stundað samkvæmisdansa frá barnsaldri, var um nokkurt skeið atvinnmanneskja í dansi. Hún hefur kennt dans um árabil og þjálfað keppendur í samkvæmisdansi.

Dóra Mjöll Hilmarsdóttir
Dóra Mjöll er heilbrigðisgagnafræðingur hjá Stendur starfsendurhæfingu. Hún býr yfir víðtækri og fjölbreyttri reynslu úr heilbrigðis- og stjórnsýsluumhverfi, sem og úr einkageiranum. Dóra lauk námi sem sjúkraliði frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Um árabil starfaði hún í Noregi sem sjúkraliði í heimahjúkrun bæði í Stavanger og í Sognfirðinum, þar sem hún öðlaðist dýrmæta starfsreynslu. Dóra sat skrifstofu- og bókhaldsnám frá NTV og svo lauk hún námi sem heilbrigðisgagnafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún starfaði um tíma sem stjórnarráðsfulltrúi hjá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þá gegndi hún starfi heilbrigðisgagnafræðings á skrifstofu geðsviðs á Landspítala við Hringbraut, auk þess sem hún var umsjónarmaður rannsóknargagna hjá Íslenskri erfðagreiningu áður en hún hóf störf hjá Stendur starfsendurhæfingu.

Kristján Reinholdsson
Kristján er með BSc. gráðu í viðskiptafræði á sviði vörustjórnunar frá Tækniháskóla Íslands. Kristján er einnig með sveinspróf í skósmíði. Að loknu námi í Tækniháskóla Íslands var hann markaðsstjóri Sælgætisgerðarinnar Freyju og síðan sérfræðingur hjá Póstinum þar sem hann vann meðal annars að innleiðingu handtölva, stækkun póstmiðstöðvar og sem deildarstjóri í Útkeyrsludeild

Ósk Ágústsdóttir
Ósk býr yfir fjölbreyttri starfsreynslu þar sem mannleg samskipti, ráðgjöf og þjónusta hafa ávallt verið í forgrunni. Áður en hún hóf störf á sviði félagsráðgjafar starfaði hún um árabil í samskipta og þjónustustörfum með breiðum hópum fólks. Hún er einnig meistari í snyrtiiðn og rak eigið fyrirtæki um árabil, auk þess að hafa menntun á sviði sölu-, markaðs- og rekstrarfræða.
Ósk hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf og stuðningi við einstaklinga og fjölskyldur sem glíma við fjölþættar áskoranir. Hún hefur meðal annars reynslu frá Ráðgjafar- og greiningarstöð og hefur yfirgripsmikla reynslu af áfallastuðningi og sálfélagslegri ráðgjöf. Að auki hefur hún sinnt hún fjölbreyttum sjálfboðaliðastörfum þar sem hún veitti bæði börnum og fullorðnum áfallastuðning og sálfélagslegan stuðning. Að auki er Ósk með menntun sem APCO vottaður neyðarvörður.
Meðfram námi starfaði hún hjá Forsætisráðuneytinu sem hluti af Grindarvíkurteyminu, þar sem hún sinnti félagsráðgjöf og sálfélagslegum stuðningi. Þá hefur hún veitt einstaklingum með fjölþættan vanda og áfengis og /eða vímuefnavanda, sem og aðstandendum þeirra, stuðning og réttindaráðgjöf með áherslu á að efla virkni, styrkja stöðu einstaklinga og tengja þá við viðeigandi þjónustu og úrræði. Fagleg áhugasvið Óskar snúa einkum að einstaklingum með fjölþættar áskoranir, fólki á batavegi eftir langvarandi áfengis og/eða vímuefnavanda, áfallamiðaðri nálgun og samþættri, einstaklingsmiðaðri þjónustu. Meistararannsókn hennar fjallaði um reynslu ungmenna og fagfólks af þjónustu við ungmenni með fjölþættan vanda og endurspeglar þannig vel þau faglegu áhersluatriði sem hún hefur lagt sérstaka rækt við í starfi sínu.

Rakel María Oddsdóttir
Rakel er menntaður félagsráðgjafi með mikla þekkingu og reynslu úr þverfaglegri endurhæfingu og teymisvinnu frá Reykjalundi ásamt reynslu af félagsráðgjöf á Landspítala og úr félagsþjónustu. Rakel hóf starfsferil sinn sem félagsráðgjafi á móttökugeðdeild á Landspítala við Hringbraut og vann síðar á vefrænum deildum á Landspítalanum í Fossvogi með áherslu á taugadeild og vann í MND teymi. Vann í þverfaglegri endurhæfingu á Reykjalundi á árunum 2011-2020 m.a. í Lungnateymi og Tauga- og hæfingarteymi. Árið 2020 var hún ráðin sem ráðgjafi í málefnum fatlaðra í stuðnings- og stoðþjónustu hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði Hafnarfjarðar og sinnti þar fjölbreyttum störfum í um tvö ár. Á árunum 2022 til 2026 hóf hún aftur störf á Reykjalundi og vann m.a. í Efnaskipta- og offituteymi, Gigtarteymi og Hjartateymi en hefur leyst af í öllum teymum á Reykjalundi og leyst af sem staðgengill fagstjóra félagsráðgjafa. Rakel hefur í áratug unnið sem starfsþjálfunarkennari við Háskóla Íslands og séð um starfsþjálfun félagsráðgjafanema á vettvangi. Rakel hefur lokið námi frá Ráðgjafaskóla LTV og er viðurkenndur leiðbeinandi í námskeiðinu, „Úr skuldum í jafnvægi“ og veitir fjármálaráðgjöf undir hugmyndafræðinni, Leiðin til velgengni. Rakel hefur haldið erindi víða sem snúa að endurhæfingu bæði á ráðstefnum og á Félagsráðgjafaþingi ásamt því að sinna ýmis konar nefndarstörfum.
