Þér er boðið á opnun myndlistarsýningar mánudaginn 31. mars kl. 14:00 – 16:00 að Flatahrauni 3, Hafnarfirði. Verkin á sýningunni eru afrakstur ástríðu, sköpunargáfu og úrræðagleði þátttakenda hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar en myndlistamaðurinn Kristbergur Ó. Pétursson sá um kennslu og leiðsögn.

